Sterkur sjávarútvegur borgi meira

Atvinnumálin verða til umræðu í kosningasjónvarpi Hringbrautar í kvöld. Þrír þátttakendur verða í umræðunum; Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð, Ingvar Mar Jónsson Framsóknarflokki og Jóna Sólveig Elínardóttir Viðreisn.

Björt framtíð og Viðreisn vilja markaðsleið í sjávarútvegi, Framsókn ekki. Um þetta verður rætt og eins ólíka sýn á landbúnað og ferðaþjónustu.

Eins tala þau um nýsköpun og stóriðju.

Þjóðbraut er á dagskrá Hringbrautar milli klukkan 21:00 og 22:00 í kvöld.