Mjög sterkur eftirskjálfti af stærðinni 7,4 á Richter reið yfir Nepal í morgun að íslenskum tíma. Upptök hans voru um 70 kílómetra norðvestur af höfuðborginni Katmandú. Skjálftinn fannst allt suður til Nýju Dehlí á Indlandi.
Óttast er að mannfall hafi orðið vegna skjálftans í morgun í þorpum og bæjum í landinu, enda er eftirskjálftinn í morgun mun stærri en fyrstu eftirskjálftarnir sem fylgdu á eftir stóra skjálftanum í síðasta mánuði sem kostaði minnst átta þúsund manns lífið, en eftirskjálftarnir þá juku mjög á hörmungarnar á svæðinu og hleyptu fleiri skriðum af stað sem stóðu tæpt í hlíðum og giljum eftir þann stóra.
Enn er verið meta tjónið í Nepal eftir stóra skjálftann í síðasta mánuði sem var af stærðinni 7,8 á Richter, en höfuðborgin Katmandú er ekki einasta mjög illa leikin eftir hann heldur eru heilu þorpin og bæirnir horfin af yfirborði jarðar úti á landi í Nepal. Er munurinn sagður sá að í Katmandú telja menn byggingar sem hafa hrunið en utan höfuðborgarinnar telja menn hús sem ennþá standa.