Sterkir árgangar þorsks og ýsu

Sterkir árgangar þorsks og ýsu eru að vaxa upp innan íslenskrar fiskveiðilögsögu sem skiptir verulegu máli fyrir efnahag þjóðarinnar á næstu árum. Jóhann Sigurjónsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar segir þessar niðurstöður mælinga úr síðasta togararalli vera í samræmi við væntingar sérfræðinga hjá stofnuninni, en þær benda raunar til þess að ástand helstu botnfiska sé almennt mjög gott.


Þorskur er ein allra verðmætasta botnfisktegund sem veiðist við Íslandsstrendur og skiptir sköpum í útflutningsverðmætum sjávarfangs hér á landi. Þess vegna eru það mikil gleðitíðindi fyrir þjóðarbúið að stofnvísitala þorsksins mælist núna sú hæsta frá upphafi mælinga fyrir 30 árum og reynist nú tvöfalt hærri en hún var í upphafi þessarar aldar. 


Það sem er hvað óvenjulegast við þessar mælingar nú á útmánuðum er hvað stofnstærð ýsu mælist há, einkum fyrir norðan land þar sem sá hvíti hefur átt undir högg að sækja á síðustu árum.