Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segir að Íslendingar séu í sterkustu efnahagslegri stöðu sem sem við höfum nokkru sinni verið í. Framundan sé eitt lengsta samfellda hagvaxtarskeið Íslandssögunnar.
Þetta kemur fram í viðtali við fjármálaráðherra á Eyjunni í dag í tilefni þess að ríkisstjórnin hefur nú verið tvö ár við völd.
Bjarni býr sig undir að leggja fyrir Alþingi í þessari viku frumvörp um afnám gjaldeyrishafta. Hann segir vel hafa tekist til við að koma á efnahagslegum stöðugleika sem endurspeglast í lágri verðbólgu, lækkandi vöxtum, auknum kaupmætti, hallalausum ríkisrekstri og þeirri staðreynd að sveitarfélög eru farin að greiða niður skuldir.
„Gangi spár eftir erum við að upplifa lengsta samfellda hagvaxtarskeið Íslandssögunnar seinni tíma," segir Bjarni. „Þá hefur vöxturinn í ferðaþjónustu skapað það miklar gjaldeyristekjur að Seðlabankanum hefur tekist að byggja upp stærri óskuldsettan gjaldeyrisvaraforða. Þetta er ástæðan fyrir því að ég vil meina að við höfum aldrei áður staðið jafnsterkt eins og við gerum akkúrat í dag."