Vísbending um erfðablöndun

Norskur eldislaxa úr slysasleppingu í Patreksfirði í nóvember árið 2013 virðist hafa hrygnt og  blandast viltum íslenskum laxi.  Þetta sýnir yfirstandandi rannsókn Hafró.

Þar eru leiddar að því líkur að komin séu afkvæmi norskra strokulaxa úr slysasleppingu í Patreksfirði. Vísbendingarnar um erfðablöndun norsks eldislax og villtra íslenskra laxastofan hafa komið fram í óbirtum gögnum Hafró.  Erfðablöndun mátti sjá í tveimur laxastofnum í Botnsá í Tálknafirði og í Sunnudalsá í Trostansfirði.

Árið 2013 var sagt frá því að tvö hundruð til fimm hundruð fullvaxnir eldislaxar hefðu sloppið úr kví í eigu Fjarðalax á Patreksfirði en þessar tölur eru nokkuð á reiki.  Næsta sumar veiddust eldislaxar í ósum Kleifár í Patreksfirði.  Talsverð ósvissa er þó um greiningu sýna og um túlkun á niðurstöðum.  Frá þessu segja Fréttablaðið og Viðskiptablaðið.  

[email protected]