Ný greinining Sjávarklasans um afkomu tæknifyrirtækja sem tengjast sjávarútvegi leiðir í ljós að meðalvöxtur tæknifyrirtækja árið 2016 var um 5-10% sem er ívið minna en árin á undan.
Helstu niðurstöður greiningarinnar eru að stór tæknifyrirtæki með heildarlausnir eflast en minni fyritæki standa í stað. Fjárfestingar íslensks sjávarútvegs í skipum og búnaði hafa haft jákvæð áhrif á tæknifyrirtækin.
Samvinna fyrirtækja eykst en tækifæri eru til frekari samvinnu og samruna. Blikur eru á lofti í rekstri fyrirtækja vegna sterkrar stöðu krónunnar.
Nánar www.sjavarklasinn.is