Marel hefur samþykkt að kaupa Sulmaq brasilískan framleiðanda búnaðar fyrir fyrsta stig kjötvinnslu. Markmiðið er að styrkja stöðu Marel í Suður-Ameríku og tryggja betri aðgang að mikilvægum mörkuðum fyrir nauta- og svínakjöt.
Sulmaq er leiðtogi í framleiðslu á búnaði fyrir fyrsta stig kjötvinnslu í Suður-Ameríku. Fyrirtækið var stofnað árið 1971 og er staðsett í Rio Grande do Sul í suðurhluta Brasilíu.
Starfsmenn fyritækisins eru um það bil fjögur hundruð. Vöruframboð Sulmaq samanstendur að mestu af svína- og nautaslátrunarlínum og tækjum til kjötskurðar og úrbeingar auk flutningstækja.
Lausnir og tæki Sulmaq er að finna vítt og breitt um Suður-Ameríku og hefur fyritækið sterk og góð tengsl við viðskiptavini sína í álfunni. Árlegar tekjur Sulmaq nema um það bil 25 milljónum evra.
Nánar www.marel.is