Tollverðir lögðu hald á nær 40.000 töflur, einkum stera en einnig að hluta stinningarlyf, að því er fram kemur í umfjöllun RÚV um málið í morgun, en þar segir jafnframt að í töskunum hafi verið um 2.500 ambúlur og 500 glös af steravökva, auk nokkurs magns af sterum í duft- og hylkjaformi. Lögreglan á Suðurnesjum fari með rannsókn málsins og teljist henni lokið.
Þetta er eitt af fjölmörgum steramálum sem upp hafa komið undanfarið. Í byrjun mánaðarins voru níu handteknir vegna innflutnings, dreifingu, sölu og framleiðslu stera.
Steraneysla hefur aukist verulega undanfarið að því er RÚV hefur eftir lögreglunni. Ungur karlmaður sem neytti stera til að ná árangri í vaxtarrækt, lýsti því í samtali við Spegilinn að í kjölfar neyslunnar hafi hann upplifað mikið þunglyndi. „Þegar maður hættir (..) ferðu langt niður fyrir eðlileg mörk (af testósteróni), áður en líkaminn fattar að byrja að framleiða það aftur. Og þá koma þessi klassísku rúsínu eystu og þunglyndi og það er frekar ömurlegt svartnætti sem fylgir því,“ sagði maðurinn, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Steranotkunin hafi einnig haft mikil áhrif á skapferli hans: \"Og varð bara alveg snar-vangefinn. En náði gríðarlega góðum árangri á mjög skömmum tíma. En ég varð alveg rosalega ruglaður. Varð rosalega high. Og alveg ofsalega erfiður í umgengni. Agressívur. Lenti reglulega í því að öskra á fólk og snappa og svona, við engin tilefni.“
Þá eru dæmi þess að drengir allt niður í 14 ára gamlir séu farnir að fikta með stera til þess að fá ákveðið útlit. Þetta segir Skúli Skúlason, formaður Lyfjaráðs ÍSÍ. Svo virðist sem útlitsdýrkun sé rót vandans. „Þetta er ótengt bætingu í íþróttum. Þetta er spurning um ákveðið útlit. Þeir eru að leita eftir því að verða stærri og sterkari,“ segir Skúli í samtali við RÚV.