Stephani­e Rósa brotnaði saman – Þakk­lát en vill ekki þiggja peninga

Ó­­hætt er að segja að þáttur Kveiks um fá­tækt sem sýndur var á RÚV í gær­­kvöldi hafi vakið mikla at­hygli. Þar stigu nokkrir ein­staklingar fram og lýstu því á opin­­skáan hátt hvernig er að vera fá­tækur á Ís­landi.

Einn af við­­mælendum Kveiks var Stephani­e Rósa Bosma, ein­­stæð móðir með eitt barn. Stephani­e starfar við um­­önnun á hjúkrunar­heimili og kvaðst hún hafa um 258 þúsund krónur til ráð­­stöfunar í hverjum mánuði. Eins og bent var á í þættinum er það undir lág­­tekju­­mörkum sem eru 311 þúsund krónur fyrir ein­­stæða móður með eitt barn. Hún borgar 126 þúsund krónur í leigu og hefur því ekki mikið á milli handanna þegar búið er að standa skil á öllum nauð­­syn­­legum út­­gjöldum.

Langar helst að gráta

Frá­­sögn Stephani­e vakti tals­verða at­hygli enda brotnaði hún saman í við­talinu. „Þetta gerir mig þung­­lynda, stressaða og kvíðna. Mig langar bara helst að gráta.“ Þegar Lára Ómars­dóttir, um­­­sjónar­­maður Kveiks, spurði hana hvað henni þætti erfiðast svaraði Stephani­e: „Að geta ekki átt mat fyrir barnið sitt.“

Í slíkum til­­vikum sagðist Stephani­e til dæmis fara til móður sinnar í mat en hún er einnig lág­­launa­­kona. Í þættinum kom fram að Stephani­e hefði farið að vinna tólf ára og nær á­vallt þurft að borga allt sjálf, til dæmis skóla­­gjöld, tölvur og síma svo fátt eitt sé nefnt. Hún sagði í þættinum að síðustu tvær vikur hvers mánaðar séu erfiðar því þá þurfi hún að telja hverja krónu.

Þakklát fyrir stuðninginn

Stephani­e skrifaði færslu á Face­book eftir þátt Kveiks í gær­­kvöldi þar sem hún þakkaði fyrir þann mikla stuðning sem hún hefur fundið fyrir.

„Ég er mjög á­­nægð hve margir vilja hjálpa mér en ég vil ekki þiggja pening,“ sagði hún og hvatti fólk frekar til að styðja þá sem eru heimilis­lausir og þau sam­tök sem að­­stoða fá­tæka ein­stak­linga. Þá sagðist hún óska þess að Berg­þóra Páls­dóttir, eða Bebba, geti komist í íbúð þar sem hún hefur skjól.

Berg­þóra sagði sína sögu í þættinum en hún er ör­yrki og býr í hjól­hýsi í Laugar­dalnum. Fyrir það greiðir hún 43 þúsund krónur á mánuði. „Ég hef ekki efni á að leigja á frjálsum markaði. Það er voða­­lega ein­falt,“ sagði hún.

Stephani­e segir að þeir sem eru heimilis­lausir séu í miklu verri stöðu en hún. „Að vera heimilis­­laus er eitt­hvað sem ég get ekki í­­myndað mér.“ Hún endar færsluna á á­kalli til stjórn­valda

„Ég vil líka að fólkið sem stjórnar landinu fari að hugsa að við höfum það ekki “gott”. Það er allt að hækka; matur, frí­­stunda­heimili og leik­­skóla­­gjöld á meðan launin eru á sama stað!“


Áhyggjur af skíðaferðinni

Eins og fyrr segir vakti þáttur Kveiks í gær­­kvöldi mikla at­hygli og voru margir sem tjáðu sig eftir hann. Drífa Snæ­­dal, for­­seti ASÍ, sagði til dæmis að það væri stór breyting frá því sem áður var að fólk sem lifir við fá­tækt neitar að skammast sín og krefst lág­­marks­­virðingar til að geta fram­f­leytt sér og veitt börnum sínum gott líf.

„Veikindi og ör­orka er á­vísun á fá­tækt hér á landi og jafn­vel fólk sem vinnur fulla vinnu getur ekki lifað með reisn. Að halda fólki í fá­tækt er hættu­­legt fyrir ein­stak­linga og hættu­­legt fyrir sam­­fé­lög. Á meðan er fólk sem lifir í alls­­nægtum og hefur aðal­­­lega á­hyggjur af því hvort það þurfi að fresta skíða­­ferðinni út af far­aldrinum. Það er vit­­laust gefið en við höfum tækin til að breyta. Þau heita skatt­­kerfi, auð­linda­­gjöld og vel­­ferðar­­kerfi. Við þurfum að beita þeim kerfum miklu mark­vissari til að jafna stöðuna og ekki síst að tryggja að enginn lifi við fá­tækt í okkar ríka landi.“

Sanna Magda­­lena Mörtu­dóttir, borgar­full­­trúi Sósíal­ista­­flokksins, sagði að fá­tækt og af­­leiðingar hennar væru það ó­­­geðs­­legasta sem til er. Það hafi verið á­takan­­legt að horfa á þáttinn. „Það er hægt að breyta þessu og búa til gott sam­­fé­lag þar sem svona finnst ekki, enginn á að þurfa að búa við svona að­­stæður.“

Þá sagði Helga Vala Helga­dóttir, þing­­maður Sam­­fylkingarinnar, að þátturinn ætti að vera skyldu­á­horf á hverju einasta heimili.

„Ég er þess full­viss að það er fullt af fólki sem veit ekkert um þær að­­stæður sem þar voru sýndar, að­­stæður okkar sam­­borgara,“ sagði hún og bætti við að við ættum að gera betur.

Þáttur Kveiks um fátækt í heild sinni.