Stendur ríkið í vegi fyrir bættum námsárangri?

Ríkið stendur fyrir námsbókaútgáfu hér á landi í grunn- og gagnfræðaskóla undir merkjum Menntamálastofnunar. Samkeppnisforskot Menntamálastofnunar á  þessum markaði er slíkt að tala mætti um lögbundna einokun. Sambærilegt fyrirkomulag þekkist ekki hjá þeim þjóðum sem við berum okkur hvað oftast saman við. Hvort sem horft er til Norðurlandaþjóðanna eða annarra Vestur-Evrópuþjóða. Þetta fyrirkomulag dregur úr hvata til framþróunar námsgagna og stendur þannig með beinum hætti í vegi fyrir bættum námsárangri íslenskra nemenda.

Námsárangur íslenskra grunnskólanema fer versnandi og stóðu nemendur sig slakast hér á landi af öllum nemendum á Norðurlöndunum í samræmdum könnunum PISA 2015. Mikil tækifæri eru til staðar til að breyta núverandi fyrirkomulagi og þannig mætti bæta samkeppnisstöðu íslenskra nemenda.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri úttekt Viðskiptaráðs Íslands á fyrirkomulkagi námsgaganútgáfu á Íslandi.

Nánar www.vi.is