Stend við hvert orð

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segist í Þjóðbraut í kvöld standa við hvert orð í skýrslunni sem hún og Guðlaugur Þór Þórðarson kynntu í gær. Þar segir meðal annars:

„Skýrslan sýnir að samningagerðin gekk alfarið út á að friðþægja kröfuhafana með því að afhenda þeim eignarhald á bönkunum, varpa allri ábyrgð á íslenska skattgreiðendur og falla frá tugmilljarða króna arðgreiðslum, endurgreiðslum og vaxtagreiðslum. Samningamenn fjármálaráðuneytisins og Seðlabankans afhentu kröfuhöfunum eignir á silfurfati og afsöluðu meira og minna öllum ávinningi ríkisins af þeirri ábyrgð sem það tók á sig frá hruni bankanna.“

Vigdís segir að leyniherbergið svokallað sé ekki tæmt og þar sé að finna mun meiri upplýsingar en þær sem þegar hafa komið fram, meðal annars í nýju skýrslunni.

Í þættinum í kvöld telur Vigdís upp hvaða gögn þar er að finna.

„Eftir að fjármálaráðuneytið hafði tekið völdin af FME voru gengistryggðu lánin endurvakin í nýju bönkunum. Var þetta þvert á ákvarðanir FME frá í október 2008 um að flytja öll útlán yfir í nýju bankana í íslenskum krónum,“ segir á einum stað. Vigdís segir að þar með hafi orðið til mikill skaði, skaði sem hægt hefði verið að komast hjá.

Þjóðbraut verður á dagskrá klukkan 21:00 í kvöld.