Ríkið hefur markvisst komið sér undan að greiða lögbundin eftirlaun frá Tryggingastofnun með því að skerða greiðslur frá stofnuninni til jafns við tekjur fólks annars staðar frá, þ.m.t. eftirlaun úr eftirlaunasjóðum og atvinnutekjur. Með þessu er ríkissjóður að stela eftirlaunasjóðum almennings um hábjartan dag.
Þetta sögðu þeir Guðmundur Gunnarsson og Wilhelm Wessman sem voru gestir Helga Péturssonar í þættinum Okkar fólk.
Þessi staða er gróft brot á þeim lögum sem gilda og þeim áratuga gömlu samningum um að launafólk fengi lágmarkseftirlaun frá ríkinu þegar kæmi að eftirlaunatöku, en jafnfram sín eigin framlög úr lífeyrissjóðakerfinu sem stofnað var til til hliðar við ríkið og án nokkurrar aðkomu þess að því.
„Við eigum almenna lífeyrissjóðakerfið og höfum greitt öll framlög til þess. Ríkið á ekkert í því fé og á ekkert tilkall til þess“, sagði Guðmundur Gunnarsson, rafvirki og fyrrum formaður Rafiðnaðarsambandsins. „Nú er svo komið að ríkið er hreinlega að græða á eldri borgurum, sem gegnum skattgreiðslur og jaðarskatta standa undir öllum kostnaði við hjúkrunarheimili og umönnun eldra fólks, - hirðir skattana en gefur ekkert á móti“.