„Ég heyrði sögu um daginn sem gengur á milli í hópi ungra kvenna. Nokkrar vinkonur frá New York fóru í helgarferð til Parísar og kvöldið fyrir heimferð fóru þær á næturklúbb til að ljúka ferðinni með trukki.“
Þannig hefst frásögn sem leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir birtir í Fréttablaðinu. Ein konan að sögn Steinunnar hitti álitlegan mann sem bauð henni heim. Konan sló til þrátt fyrir að vinkonurnar væru ósáttar við að hún yrði viðskila við hópinn skömmu fyrir brottför. Konan fór heim með manninum sem bauð þá upp á nudd. Steinunn segir:
„Hann smyr hana ilmolíum og eitthvað finnst henni lyktin ankannaleg en reynir samt að njóta nuddsins.“
Vinkonurnar voru á sama tíma staddar fyrir utan Airbnb íbúðina sína en komust þá að því að vinkonan var með húslyklana. Steinunn Ólína segir:
„Þær muna þá eftir því að þær eru með snjallforritið Find my friend. Með aðstoð GPS-forritsins finna þær út í hvaða byggingu vinkonan er niðurkomin og skunda þangað. Eitthvað er nuddið að verða óþægilegt og yfirþyrmandi þegar okkar kona heyrir að utan vinkonurnar kalla á sig.“
Konan þakkaði fyrir nuddið og hlustaði ekki á mótbárur nuddarans, heldur dreif sig í föt. Steinunn Ólína segir:
„Morguninn eftir fljúga stöllurnar heim en sú sem hafði fengið nuddið er alveg hreint viðþolslaus af kláða og steypist öll út í útbrotum og fer umsvifalaust á bráðamóttöku, beint af flugvellinum. Þar er henni haldið í rannsóknum sem enda á yfirheyrslum FBI. Nudd olían sem flagarinn hafði borið á hana hafði innihaldið kjötmeyri, efni til að ná seigju úr kjöti. Nuddarinn ætlaði sér sumsé aldrei að sænga hjá dömunni, hann ætlaði að éta hana. Góða helgi!“