Steinunn segir hámarksálag á heimilislækna illa skilgreint og ekkert þak á fjölda skjólstæðinga

Steinn Þóraðardóttir, formaður Læknafélagsins, segir starfsumhverfi heimilislækna erfitt á Íslandi, álagið mikið og verkefnin óljós.

Ekkert þak sé á fjölda skjólstæðinga heimilislækna og á þeim lendi oft fleiri verkefni sem ættu að vera á borði sérfræðilækna eða fagstétta.

Fréttablaðið greinir frá þessu en þar segir jafnframt að læknaskortur sé á Íslandi og að 847 íslenskir læknar séu starfandi erlendis.

Þá sé Ísland með hlutfallslega mun færri heimilislækna en önnur Evrópulönd.

Steinunn segir heimilislækna oft lenda í því að þurfa vera sálfræðinga, félagsráðgjafa og allt mögulegt fyrir fólk því það vantar fólk úr þeim stéttum á heilsugæsluna.

Hún telur Ísland hafa sóknarfæri að laða að íslenska lækna sem starfi erlendis og fá þau heim.

Umfjöllun Fréttablaðsins má lesa í heild sinni hér.