Leikkonan þjóðþekkta Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir hefur vakið hörð viðbrögð netverja vegna pistils sem hún skrifaði um byrlunarfaraldurinn á skemmtistöðum borgarinnar. Er henni ýmist hampað eða skrifin fordæmd. Í pistlinum sem hún birtir á Facebook varar h hún við því að fólk gefist siðfárinu á vald og bendir á að fólk geti upplifað ástand svipuðu því að vera byrlað ef það neytir áfengis ofan í kvíða- eða þunglyndislyf, segist hún raunar sjálf hafa lent í því margoft.
„Áfengi er efni sem fólk ætti aldrei að neyta á fastandi maga, þreytt og illa fyrir kallað og helst aldrei samhliða sumum lyfjum. Það eru margreynd vísindi að bæði SSRI lyf þ.e algeng þunglyndislyf og bensólyf ss. eins og hið vinsæla kvíðalyf Sobril eru afskaplega óheppileg í félagi við áfengi. Mörg önnur vel þekkt lyf hafa einnig neikvæða verkun á áhrif áfengis í blóðinu en af öðrum lyfjum en fyrrnefndum hef ég ekki persónulega reynslu og get því ekki tjáð mig um það af neinu viti,“ skrifar hún.
Steinunn segist hafa hætt að drekka fyrir tæpum tíu árum síðan en meðan hún drakk tók hún bæði þunglyndislyf og kvíðalyf um þriggja ára skeið og fór sú blanda vægast sagt illa saman. Þá segist hún einnig hafa svarað tölvupóstum að kvöldi til skýrt og skilmerkilega án þess að muna nokkuð eftir því morguninn eftir.
„Ég sýndi af mér á stundum undir áhrifum áfengis og ofangreindra lyfja kynferðislega tilburði og áhættuhegðun sem fengju nektardansara og stuntleikara til að roðna af skömm og mundi ekkert af því næsta morgun. Einhverskonar siðrof.
Ég upplifði líka skelfilega hluti, eins og að skottast út í búð að kvöldlagi, að mér fannst lítið drukkin og vakna til sjálfrar mín eins og úr öðrum heimi eftir að hafa hlaupið í sjálfstortímingarham yfir hraðbraut í Los Angeles,“ skrifar Steinunn.
Margir gagnrýna hana harðlega, þar á meðal Helga nokkur sem segir: „Það er fullt af fólki sem sækir skemmtistaði til að vera samlætis öðrum, dansa og djamma en notar ekki áfengi, drekkur jafnvel vatn eða gos, engu að síður er því byrlað, það er barasta allt önnur ella, en ég skil hvað þú ert að fara, ég hef ekki trú á því að líkamsleit við dyr skemmtistaða leysi vandann,“ segir hún. „Ég hef séð byrlunaráhrif og það er hreinlega skelfilegt. Að byrla einhverjum eitthvað er fullkomin viðurstyggð og tilaun til manndráps if you will.“
Svala segir þetta langsótt hjá Steinunni Ólínu: „Mögulega er hægt að skýra einhverjar grunaðar byrlanir með óheppilegri blöndu lyfja og áfengis, en það er frekar langsótt að ætla að það sé almenn skýring. Auðvitað vill margt fólk helst ekki trúa að samferðamenn þeirra séu færir um ógeðslega glæpi eins og byrlun er, þannig að það fagnar svona skrifum.“
Ingibjörg segir: „Mér finnst í þessum pistli örla á þeirri skoðun að þolandinn eigi að passa sig, ekki í fyrsta sinn sem það er gert.“
Brynhildur Yrsa segir svo: „Byrlanir og það að drekka ofan í lyf er hvergi nándar nærri það sama. Ef fólk nennti að kynna sér einkenni bæði byrlanna og að drekka ofan í lyf kæmist það fljótt að því. En ég skil alveg halelújakórinn hér því það er mannskepnunni tamt að reyna að sjá það besta í samferðafólki sínu. Fyrst verið er að byrla fólki ólyfjan í stórum stíl hljóta að vera gerendur þarna úti, og fólk er ekki tilbúið að trúa svona slæmu upp á aðra.“
Andrea Eyland segir svo: „Mikið óskaplega sárnar mér persónulega og fyrir hönd kynsystra minna sem hafa verið byrlað að þú skulir mixa þessu tvennu saman. Ég trúi varla að þú hafir sest niður og skrifað þetta?
Ég hef djammað óheyrilega í gegnum tíðina og líka tekið þunglyndislyf. Það er EKKERT líkt þeirri tilfinningu að vera byrlað. EKKI NEITT!“