Leikkonan og fjölmiðlakonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir segir að landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Helgason geta náð langt í heimi kvikmyndanna. Hún segir fyrstu kvikmyndina hans, Leynilöggan, vera gull: „
„Fyrir þá sem ekki vita þá er ég ekki íþróttamaður, hef aðeins einu sinni farið á íþróttaleik en ef draga á einhvern lærdóm af þessari ferð íslenska hópsins til Locarno þar sem við fórum með kvikmynd Hannesar Þórs Halldórssonar, Cop Secret eða leynilöggan á kvikmyndahátíð, þá er kennslustundin þessi:
Íslenski kvikmyndabransinn hefði gott af því að taka það inn yfir sig að ENGINN stendur einn, ekki leikstjórinn, ekki framleiðandinn, ekki handritshöfundurinn, ekki aðalleikarinn og þetta skilja Hannes Þór Halldórsson leikstjóri Leynilöggunnar og Lilja Ósk Snorradóttir framleiðandi kvikmyndarinnar betur en flestir sem ég hef kynnst í bransanum.“
Hún segir að Hannes, Lilja Ósk og Auðunn Blöndal, sem voru í forsvari á blaðamannafundum, hafi verið óeigingjörn og örlát í garð allra sem áttu þátt að máli. „Ég var virkilega snortin og svo eru þau auðvitað svo fokking frambærilegar manneskjur öllsömul að ég var að rifna úr stolti að fá að vera með þeim í för.“
Steinunn Ólína segir í pistli á Facebook það hafa verið ólýsanlega gaman að sjá myndina í fyrsta sinn í 2500 manna sal, hún sé skemmtileg og hafi fram úr sínum björtustu vonum. „Kvikmynd sem snerti mig aftur og aftur sem kom mér verulega óvart því að hún tæpir oftar en mann grunar á sammannlegum og viðkvæmum málum. Kvikmynd þar sem lærðir og leikir unnu saman sem einn maður.“
Steinunn Ólína heldur áfram :
„Ég leyfi mér að fullyrða að leynilöggan sé það ferskasta og frumlegasta sem hefur komið frá Íslandi í háa herrans tíð. Á svo mörgum sviðum að ég get ekki rætt það án þess að spoila og það vil ég ekki gera vona bara að við getum frumsýnt á Íslandi sem allra allra fyrst. Og fyrir þá sem hafa efasemdir um svona stráka action komedíu með aðalleikarana Auðunn Blöndal, Egill Einarsson, og Sverrir Krull og vilja kannski fyrirfram dæma hana, þá er okkur konunum í myndinni Vivian Ólafsdóttir gert afar hátt undir höfði í þessari kvikmynd. BadAss allar sem ein.“
Hún segir að Hannes Þór geti náð langt:
„Hannes er á leið til Hollywood eða bara þangað sem hann langar. Þetta ferska debut hans sem leikstjóra er gull! Og það er mín einlæga trú að kvikmyndin Leynilöggan muni fljúga hátt á næstu mánuðum!“