Steinunn ósátt: „allt snérist þetta um að koma hernaðarbröltandi þykjustufemínista á stól forsætisráðherra íslands“

„Vinstri grænir eru nú um stundir ósvífnasti popúlistaflokkur landsins sem iðkar það að sinna áhyggjum margra ólíkra hópa með því að hamra á áherslum þeim sem Sjálfstæðisflokkurinn leggur lítið upp úr, enda er sá flokkur stjórnmálaafl auðvaldsstétta á Íslandi og fer ekki í launkofa með það. Sjálfstæðisflokkurinn er og hefur alltaf verið grímulaus í sérhagsmunagæslu sinni.“

Á þessum orðum hefst athyglisverður pistill Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur er nefnist „Vinstri popúlismi,“ og birtist á vef Fréttablaðsins í gærkvöldi.

Eins og sjá má er hún ekki sátt við Vinstri græna og sendir þeim tóninn: „Vinstri grænir hafa alla tíð sótt atkvæði sín til vinstri manna í samfélaginu og með aggressívum popúlískum aðferðum hafa þeir einnig gert út á að veiða til sín þá sem kalla sig friðarsinna, umhverfissinna og femínista. Undir þessum formerkjum eru Vinstri grænir í ríkisstjórn í dag.“

„Þegar Vinstri grænir andmæla ekki fyrirhugaðri uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli þá svíkja þeir á einu bretti alla sína kjósendur og sýna í verki að ekkert er þeim fjarlægara en að standa vörð um umhverfið, heimsfriðinn, mannréttindi, velferð almennings eða femínisk gildi,“ heldur Steinunn áfram.

Hún nefnir dæmi af umhverfisvernd og segir Vinstri græna gera fátt annað en að skreyta sig með hugmyndavinnu og framlagi annarra í málaflokknum. „Vatnajökull á heimsminjaskrá er dæmi um það sem Vinstri grænir stæra sig af en var unnið alfarið og eingöngu af Vinum Vatnajökuls - hollvinasamtökum Vatnajökulsþjóðgarðs sem hafa haft þetta að markmiði sínu síðan 2009 og unnu umsóknina frá upphafi til enda. Svona vinna popúlistar, skreyta sig með stolnum fjöðrum.“

Steinunn segir að Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stæri sig af einhverju sem kallist aðgerðaráætlun Íslands í loftslagsmálum. „[Hún] segir á erlendri grundu að sökum smæðar landsins sé hægt að vinna að þeim markmiðum hratt og örugglega. Þetta er lygi og við vitum það. Ef smæðin skapar tækifæri til umhverfisverndar þá er Katrín ekki að nýta þau. Um það vitnar til dæmis viðnámsleysi Vinstri grænna gagnvart rammaáætlun um eyðileggingu ósnortinna víðerna í Árnesshreppi vegna Hvalárvirkjunar.“

Steinunn segir að Katrín hafi farið illa með Guðmund Inga Guðbrandsson umhverfisráðherra, sem hafi „tikkað í öll vinsældabox“ og segir Steinunn að Katrín hafi ekki þreyst á að skreyta sig með honum þegar hann var skipaður.

„Nú hefur hún hins vegar eins og allir góðir popúlistaleiðtogar hrundið honum frá sér eins og gömlum kærasta og lætur hann sitja í súpunni, súpu þeirri sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur mallað alla tíð. Í þá súpu hafa Katrín og co. kastað þykjustuhugsjónum sínum fullkomlega auðsveip við súpugerðarmanninn því sæti við hans borð virðist eina hugsjón Vinstri grænna,“ bætir Steinunn við.

Stuðningur við hernað

Steinunn víkur máli sínu að Bandaríkjunum og skilur lítið í stuðningi við uppbyggingu Bandaríkjahers á Keflavíkurflugvelli. Hún segir að fólk viti ekki hvenær hótanir Donald Trump Bandaríkjaforseta um styrjaldir verði að veruleika en að við hlið hans sitji hernaðarsjúkir menn sem séu til alls líklegir.

„Bandaríkin eru alræðisríki sem hundsa lög annarra landa þegar það hentar þeim. Vinstri grænir geta ekki skýlt sér á bak við að uppbygging á Keflavíkurflugvelli hafi ekki víðtæk áhrif á heiminn allan. Án þess að lýsa yfir andstöðu við bandaríska herinn nú, styðja Vinstri grænir hernað í hverri þeirri mynd sem við getum teiknað upp fyrir hugskotssjónum okkar. Allt annað sem þeir hafa áður sagt um andstöðu við hernað er tilgerð ein,“ segir hún.

Mannfjandsamleg stefna í innflytjendamálum

„Hvar standa Vinstri grænir þegar mannréttindi eru annars vegar?“ spyr Steinunn og heldur áfram:

„Aldrei hefur fleira land– og veglaust fólk villst um á þessari jörð. Það særða og smáða mannhaf er afsprengi styrjalda sem Bandaríkjastjórn ber mikla og í mörgum tilfellum alla ábyrgð á. Mannfjandsamleg stefna Íslands í innflytjendamálum er undir verndarvæng sitjandi ríkisstjórnar sem VG leiðir.“

Steinunn bendir einnig á að fjármagn sem átti að fara til þróunaraðstoðar var fært til hernaðauppbyggingarinnar á Keflavíkurflugvelli. „Allt sem Vinstri grænir hafa gefið sig út fyrir hvað mannréttindamál snertir verður að salti þegar hluti fjármagns sem eyrnamerkt er þróunaraðstoð fer til hernaðaruppbyggingar á Keflavíkurflugvelli.“

Má ekki gagnrýna Katrínu því hún er kona

Steinunn gagnrýnir nálgun Vinstri grænna þegar kemur að femínisma og segir: „Feminísk gildi Vinstri grænna liggja í því að Katrín er kona og forsætisráðherra. Feminísk gildi Vinstri grænna liggja líka í því að hana má ekki gagnrýni af því að hún er kona. Konur má ekki gagnrýna því konur eru fórnarlömb karlaveldis sem er vont við konur. Vonda stjórnendur EF þeir eru konur má ekki gagnrýna af því að þeir eru konur. Konur eru alltaf góðar og karlar mjög oft vondir í popúlistahandbók Vinstri grænna.“

„Fátækar, veikar og aldraðar konur á Íslandi eiga sér engan málsvara hjá Vinstri grænum. Vinstri grænar stjórnmálakonur vilja bara valdastóla eins og karlmenn, þá eru þær að sögn að vinna að feminískum gildum,“ bætir hún við.

Steinunn segir Vinstri græna hafa nýtt sér byltingar eins og #MeToo sér til framdráttar. „Völdu að mála skærum litum áherslur sínar til að uppræta ofbeldi gegn konum. Gerðu sér sumsé beinlínis mat úr kynbundnu ofbeldi í vinsældasmölun en athugið aðeins ofbeldi gagnvart konum. Og afraksturinn er­ gjá og sár milli karla og kvenna í landinu.“

Einn versti popúlisti sem landið hefur alið

„Enginn femínisti með réttu ráði styður hernað en það gera Vinstri grænir nær möglunarlaust þrátt fyrir að hafa gert frið og andhernað að sínu meginmáli í orði. Katrín krafsar í bakkann og kallar eftir umræðu almennings um það sem er löngu frágengið í fyrri ríkistjórnum þessa lands. Hvernig getur hún kallað sig femínista og gengið inn í slíkt stjórnarsamstarf? Stjórnarsamstarf sem virðir umhverfis-, mannúðar-, velferðar-, friðar- og réttindi barna og mæðra að vettugi?“ veltir Steinunn fyrir sér.

„Katrín getur það af því að hún er popúlisti og einn sá versti sem landið hefur alið.“

Hún segir Miðflokkinn hafa verið sakaðan um popúlisma og að það megi til sanns vegar færa. „Miðflokkurinn er hins vegar heiðarlegur í óheiðarleika sínum. Þeir nota grútmygluð meðul til að afla vinsælda og skammast sín ekkert fyrir það, viðurkenna það möglunarlaust.“

Steinunn segir það hins vegar ekki tilfellið hjá Vinstri grænum. „Að gangast við svikum sínum geta Vinstri græn ekki. Katrín og flokkssystkini hennar geta ekki verið heiðarleg við almenning í landinu. Þau geta ekki viðurkennt valdaleysi sitt í stjórnarsamstarfinu og þægðina sem þau auðmjúk sýna Sjálfstæðisflokkinum og NATÓ fyrir sýndarvöld sem er það eina sem þeim er annt um. Að eiga stól og bera titil.“

Hún telur það því augljóst að Vinstri grænir hafi komist til valda með popúlískum aðferðum í kosningabaráttu sinni. „Orð Vinstri grænna snérust þannig um að safna atkvæðum og eru því ómerk. Um æruna er þeim augljóslega sama því allt snérist þetta um að koma hernaðarbröltandi þykjustufemínista á stól forsætisráðherra Íslands svo hún geti gert sig breiða á alþjóðavettvangi og fengið verðlaun og viðurkenningar fyrir óunnin störf,“ segir Steinunn að lokum.