Steingrímur vildi komast í rausnarlegt sumarfrí og miðflokkurinn vann: veldur ekki starfinu

„Alþingi er ónýtt. Sú ákvörðun að taka af dagskrá mál sem stór meirihluti þingmanna hefur þegar rætt í þaula og er samþykkur, burtséð frá hvaða mál er um að ræða, þá er sú ákvörðun grafalvarleg.“

Þetta segir Illugi Jökulsson rithöfundur í færslu á Facebook. Vill Illugi að Steingrímur verði settur af sem forseti þingsins. „Hann veldur greinilega ekki sínu starfi,“ bætir Illugi við. Þá telur blaðamaðurinn Jakob Bjarnar Grétarsson að rekja megi þessa ákvörðun til þess að þingmenn vilji komast sem fyrst  í sumarfrí sem miðist við sauðburð.

Fjölmargir tjá sig undir færslu Illuga en í þeim hópi eru þingmennirnir Guðmundur Andri Thorsson, Halldóra Mogensen og Björn Leví. Gagnrýnir Guðmundur Andri Illuga og finnst hann tala af vanvirðingu um þingið. Illugi svarar:

„Mér finnst því miður alveg rétt að tala svona um þingið okkar ef það hefur engin ráð og engan dug til að ráða við þetta.“

Þá bendir Björn Leví á að á síðasta þingi hafi annað mál verið tekið af dagskrá, einnig út af Miðflokknum. Halldóra Mogensen kveður sér hljóðs og segir: „Þetta var skynsamlegasta lausnin í sjónmáli. Forseti í sjómann við miðflokkinn á meðan að mikilvæg mál bíða afgreiðslu er ekki beint til fyrirmyndar. Tökum mál sem næst samkomulag um fram fyrir röðina og svo getur 3op umræðan haldið áfram í allt sumar ef þess þarf.“

Þór Saari fyrrverandi þingmaður segir þetta rétt hjá Illuga og segir alþingi ekki geta starfað líkt og siðað löggjafarvald í lýðræðisríki. Þór Saari segir: „Þar er aðallega um að kenna skort á siðviti þingmanna, fullkominni sjálfhverfu þingmanna, þingflokka og stjórnmálaflokka, sem og óheftu aðgengi sérhagsmunafla að ráðuneytum og stjórnmálaflokkum. Í slíku umhverfi getur Alþingi einfaldlega ekki virkað, þótt menn vildu það.“

Þá á Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður á Vísi lokaorðið í þessari yfirferð. Telur Jakob að ákvörðun Steingríms J. Sigfússonar snúist um að komast sem fyrst í sumarfrí. Með þessu hafi Miðflokkurinn sigrað störukeppnina við Steingrím. Jakob Bjarnar segir:

„Þó þingmenn þreytist ekki á því að reyna að útskýra fyrir fólki að starf þeirra snúist um meira en þingfundina; nefndarfundi og þeir þurfi að ríða um sveitir og heyra ofan í kjósendur (hæ Ási) þá vilja fæstir kaupa það.

Óneitanlega lítur þetta svo út að þingmenn meti rausnarlegt sumarfrí sitt, sem frá öndverðu miðaðist við sauðburð og svo fram yfir réttir, meira en annað. Og um það snúist þessi ákvörðun SJS og fátt annað. Miðflokkurinn hrósar því sigri.“