Steingrímur J. hefur gagnrýnt þingmenn Miðflokksins harðlega vegna málþófs. Sjálfur var Steingrímur fyrr á árum margfaldur ræðukóngur Alþingis, ár eftir ár. En nú hefur umræðu um þriðja orkupakkann á Alþingi hefur verið frestað um óákveðinn tíma en umræðan er orðin sú næstlengsta á Alþingi síðan þing var sameinað í eina deild árið 1991. Umræðan hefur staðið yfir í 134 klukkustundir og átta mínútur og er þannig klukkustund styttri en umræðan um Icesave og um 36 klukkustundum lengri en umræðan um EES-samninginn.
Steingrímur hafði áður lýst yfir að hann hefði ýmsa ása uppí erminni til að stöðva málþóf Miðflokksins. Nú hefur það komið í ljós hver ein af hugmyndum Steingríms var. Í ljósi alls þessa er forvitnilegt að skoða ummæli tveggja þingmanna, þeirra Sigmundar Davíðs og Steingríms J þegar þeir voru spurðir árið 2008 hvort kæmi til greina að breyta þingsköpum til að lágmarka málþóf.
Sigmundur Davíð svaraði: „Ef það er vilji þingheims.“
Þá svaraði Steingrímur J. Sigfússon þeirri sömu spurningu:
„Nei, það verður líka að verja málfrelsið.“