Stjórnendur Bankasýslu ríkisins halada því fram að Steingrímur J. Sigfússon, þáverandi fjármálaráðherra, hafi skort heimild í lögum til að framselja eignarhluti ríkisins í Arion banka og Íslandsbanka til slitabúa Kaupþings og Glitnis síðla árs 2009.
Rök Bankasýslunnar eru þau að yfirtaka slitabúanna á umræddum eignum hafi talist til ráðstöfunar á eignum ríkisins samkvæmt áliti Ríkisendurskoðunar og því hefði þurft að afla heimildar í fjárlögum fyrir árið 2010 fyrir henni. Það var ekki gert enda voru samningar um framsalið gerðir annars vegar 3. september og hins vegar 15. október 2009. Fjárlög voru hins vegar ekki samþykkt á Alþingi fyrr en 22. desember sama ár, eða rúmum tveimur mánuðum eftir síðari samninginn. Þetta kemur fram í umsögn Bankasýslu ríkisins um frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra til laga um meðferð og sölu eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum, en Morgunblaðið segir frá málinu í dag og kveðst hafa umsögnina undir höndum.
Í blaðinu er Guðmundur Ámason, ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinur sagður hafa sett þrýsting á Bankasýsluna um skipun stjórnarformanns í fjármálafyrirtæki sumarið 2014. Í umsögninni fullyrðir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Bankasýslunnar, að Guðmundur hafi einnig reynt að fá stjórnarfundi í sama fyrirtæki frestað. Fjármálafyrirtækið sem um ræðir er ekki nefnt í frétt blaðsins um umsögnina. Forstjórinn er sagður hafa mótmælt umræddum afskiptum, talið þau ekki í samræmi við lög og upplýsti stjórn stofnunarinnar um afskiptin.