Steingrímur kallaði bjarna skólastrák

Eldheitar umræður urðu um frumvarp stjórnvalda til að fresta verkföllum heilbrigðisstarfsfólks á Alþingi eftir að umræðan fór loks í gang, en ósætti var fram eftir degi um tilhögun þingfundar.

Yfirlýsingagleðin var ekki síst í máli Steingríms J. Sigfússonar þingmanns VG sem sagði í pontu um atkvæðagreipsluna og sér væri skapi næst að greiða atkvæði gegn því að málið kæmist á dagskrá. Skaðinn væri hins veg­ar þegar skeður gagn­vart samn­ings­rétti og stjórn­ar­skrár­vörðum lýðrétt­ind­um í land­inu með því að frum­varpið væri komið fram.

Í miðri ræðunni kallaði Bjarni Bendiktsson fjármálaráðherra fram í ræði Steingríms, en hann situr beint fyr­ir aft­an pontu Alþingis: \"Hvað um sjúk­ling­ana?“ Brást Steingrímur ókvæða við frammíkallinu og spurði þá ráðherra hvort hann ætlaði að bera það upp á stjórn­ar­and­stöðuna að henni væri skít­sama um sjúk­linga: \"Er það inn­leggið? Nei, menn skulu bara tala skýrt. Ef að hæst­virt­ur fjár­málaráðherra vill leggja það inn í umræðuna að þeir sem leyfa sér að and­mæla rík­is­stjórn­inni sé skít­sama um sjúk­linga þá vil ég biðja hann að segja það en ekki gjamma það hérna fram í eins og lít­ill skólastrák­ur,“ sagði Stein­grím­ur og var heitt í hamsi. 

Þingfundi dagsins lauk ekki fyrr en á ellefta tímanum í kvöld. Hefur annar verið áformaður eft­ir há­degi á morg­un til að ræða frekar frrum­varp rík­is­stjórn­ar­inn­ar á verk­fallsaðgerðir fé­laga í BHM og Fé­lags ís­lenskra hjúkr­un­ar­fræðinga.

Í lok fund­arins í kvöld var til­kynnt að málið myndi ganga til alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar.