Steingrímur ari lætur af störfum

Steingrímur Ari Arason hefur verið forstjóri Sjúkratrygginga Íslands síðan í nóvember 2008 en velferðarráðuneytið auglýsir nú laust til umsóknar embættið. Stein­grímur Ari hefur verið for­stjóri stofn­un­ar­innar frá stofn­un, en skip­un­ar­tím­inn er til fimm ára í senn.

Skip­un­ar­tími for­stjóra rennur út í lok októ­ber á þessu ári. 

Sjúkra­trygg­ingar Íslands starfa sam­kvæmt lögum um sjúkra­trygg­ingar sem tóku gildi þann 1. októ­ber 2008. Stofn­unin heyrir undir heil­brigð­is­ráð­herra og ann­ast fram­kvæmd sjúkra­trygg­inga. Jafn­framt semur hún um og greiðir fyrir heil­brigð­is­þjón­ustu.

Mikla athygli vakti þegar Stein­grím­ur Ari Ara­son, sem þá var fram­kvæmda­stjóri Lána­sjóðs ís­lenskra náms­manna  og fyrr­um aðstoðarmaður fjár­málaráðherra, sagði sig úr fram­kvæmda­nefnd um einka­væðingu árið 2002. Hann hafði setið í einka­væðing­ar­nefnd bankana frá því að hún var sett fom­lega á lagg­irn­ar í árs­byrj­un 1992. Hann var til­nefnd­ur í nefnd­ina af þáver­andi fjár­málaráðherra, Friðriki Soph­us­syni.