Steingímur j. í einkaerindum

„Hann er fjarverandi í persónulegum erindagjörðum,“ segir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður og samflokksþingmaður Steingríms J. Sigfússonar hjá VG í Norðausturkjördæmi, í samtali við Hringbraut.

Steingrímur mun ekki gegna þingmennsku á næstunni efrtir því sem fram kom hjá forseta Alþingis í gær. Hefur Ingibjörg Þórðardóttir, annar varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar í Norðausturkjördæmi, tekið sæti hans á Alþingi. Ingibjörg hafði ekki tekið sæti á Alþingi áður og undirritaði því í gær drengskaparheit að stjórnarskránni.

Samkvæmt heimildum visir.is er Steingrímur í fjölskyldufríi erlendis. Hringbraut hefur heimildir fyrir því að sumir þingmanna telji að frí Steingríms komi á óvart og veki spurningar. Hann er fyrrverandi formaður VG og hefur að sögn þingmanna að jafnaði mætt til þings þegar hann hefur getað.

Frí Steingríms kemur í kjölfar kjördæmaviku en ekkert var fundað á þingi í síðustu viku vegna hennar.