Ritstjórarnir Steingerður Steinarsdóttir og Þóra Tómasdóttir, sem stýra pennum Vikunnar og Fréttatímans setjast á rökstóla með Sigmundi Erni í fréttaskýringaþættinum Ritstjórunum á Hringbraut í kvöld.
Gagnrýni Kára Stefánssonar á sofandahátt vinstri manna í velverðarmálum er fyrst á dagskrá, svo og getuleysi stjórnmálaflokka til að hrinda baráttumálum sínum í framvæmd. Þá verður fjallað um síðustu nauðgunarmálin sem verið hafa til umfjöllunar í fjölmiðlum og spurt hvort vægar sé tekið á þeim ofbeldismálum en öðrum. Eins verður fjallað um vændi á Íslandi sem hefur verið afar áberand í umfj0llun fjölmiðla að undanförnu - og loks verður staldrað við í pólitíkinni heima á Íslandi, þar á meðal þá \"sópranólegu-senu\" sem blasti við fólki fyrir fáum dögum þar sem tveir stórir og svartir ráðherrabílar sáust framan við ríkmannlegt einbýlishús í Arnarnesinu. Að endingu fær Donald Trump nokkur orð um eigið fágæti.
Ritstjórarnir eru á dagskrá Hringbrautar klukkan 21:30.