\"Mamma mín og besta vinkonan í sleik er eitthvað sem ég hélt að ég myndi aldrei upplifa,“ tístir Steiney Skúladóttir.
Með því vísar hún af gráglettni til leiksýningarinnar Mávurinn eftir Tsjékhov en Halldóra Geirharðsdóttir er móðir Steineyjar og fer með stórt hlutverk í sýningunni sem og vinkona Steineyjar, Þuríður Blær Jóhannsdóttir. Leikstjóri er litháíska leikstýran Yana Ross sem vakið hefur mikla athygli bæði í heimalandi sínu og víða um heim, ekki síst fyrir nýstárleg og kraftmikil tök á sígildum leikritum.
Mávurinn er eitt stórbrotnasta leikrit rússneska leikskáldsins Antons Tsjékhovs. Það er gamansamt og alvarlegt í senn og greinir sig þannig frá tísti Steineyjar á Tweeter sem er púra grín – þótt aðstæðurnar kunni að skelfa þá sem ekki gera greinarmun á persónum og leikendum!
Steiney hefur ásamt öðru gert það gott í Hraðfréttum og kippir í kynið þegar kemur að snjöllum og beittum húmor.