Steindi var á forsíðu æskunnar: var klæddur sem lítil stelpa

Steinþór Hróar Steinþórsson, eða Steindi eins og sumir kalla hann, segir í nýjum þætti af Einkalífinu á Vísi frá því þegar hann var á forsíðu tímaritsins Æskunnar. Það var árið 1991, en upphaflega átti, Óli, vinur hans að vera á forsíðunni með lítilli stúlku.

Litla stúlkan sem átti að sitja fyrir komst hins vegar ekki og ekki tókst að fá aðra í staðinn. Ljósmyndarinn og Steindi dóu hins vegar ekki ráðalausir, og var Steindi klæddur upp sem lítil stelpa og sat þannig fyrir á forsíðu tímaritsins.

Svona segir hann frá aðdragandum og myndatökunni, í þættinum:

„Mér fannst þetta vera svo spennandi. Ég mætti með honum og svo kemur það í ljós að stelpan hefur ekki fengið memo-ið eða eitthvað og mætir ekki. Þannig að það er ákveðið að setja mig í kjól og setja á mig hárkollu og ég var settur við hliðina á honum. Svo var myndin tekin og þetta var jólaforsíða Æskunnar 1991.“