Steinsafn Petru á Stöðvarfirði laðar að marga ferðamenn. Linda heimsótti safnið fyrir austan og ræddi við son Petru sem fullu nafni var skírð Ljósbjörg Petra María Sveinsdóttir. Hún hóf að safna steinum uppúr seinna stríði en steinarnir hennar eru langflestir úr Stöðvarfirði og af Austurlandi. Í dag eru þeir óteljandi, bæði innan og utandyra en það var árið 1974 sem Petra ákvað Petra að opna heimili sitt fyrir þeim sem vildu skoða steinana hennar.
Þór Bæring Ólafsson og Bragi Hinrik Magnússon byrjðu árið 2003 að skipuleggja fótboltaferðir til útlanda – eitthvað sem þeim fannst lítið sem ekkert framboð af. Svo liðu árin og í dag reka þeir félagar Gamanferðir í samstarfi við WOW air sem hafa margs konar sérstöðu á markaðnum.
Jakob S. Jónsson leiðsögumaður ræðir öryggismál í ferðaþjónustu sem eru ekki á pari við það sem gerist í öðrum atvinnugreinum.
Sigmundur bregður sé á Nesjavelli og skoðar hið dæmalausa ION hotel sem má nefna með sönnu ævintýrahótel. Hann hittir þar Höllu Hallgrímsdóttur hótelsstjóra og Sigurð Ágústsson yfirmatreiðslumeistara.
Ferðalagið er frumsýnt Kl.20 á mánudagskvöldum og svo endursýnt.