Tóbakið styrkiti steinaldarmennina

Fyrstu tvær þáttaraðirnar um Steinaldarmennina voru styrktar af tóbaksframleiðandanum Winston. Eins og þá tíðkaðist í bandarísku sjónvarpi birtust aðalpersónurnar í lok hvers þáttar og vöktu athygli á Winston sígarettum með slagorðunum \"Winston bragðast vel eins og sígaretta ætti að gera (Winston tastes good like a cigarette should.)\"

Þetta er meðal þess sem fjallað verður um í þættinum Hvíta tjaldið á dagskrá Hringbrautar í kvöld þar sem haldið verður áfram frá því í síðustu viku að fjalla um sögu teiknimynda. Greint er frá titlum á borð við Mjallhvíti og dvergana sjö (Snow White and the Seven Dwarfs), Leikfangasögu (Toy Story) og Steinaldarmennina (The Flinstones.)

Í seinni hluta þáttarins verður svo greint frá leikferli og lífshlaupi gamanleikarans Tim Allen, en hann verður 65 ára gamall í júní næstkomandi og hefur komið víða við á ævi sinni.

Ekki missa af Hvíta tjaldinu á Hringbraut í kvöld kl. 21:30.