Steiktu rjúpubringurnar og hreindýrið hennar hrefnu rósu eru þvílíkt lostæti - toppaðar með rósmarín einiberjasósu sem enginn stenst

Í þættinum Fasteignir og heimili á dögunum heimsótti Sjöfn Þórðar, Hrefnu Rósu Sætran matreiðslumeistara, rithöfund matreiðslubóka og sjónvarpskokk með meiru í eldhúsið hennar í Skerjafirðinum. Í tilefni þess að jólahátíðin er framundan og fjölmargir hafa óskað eftir ráðum og hugmyndum fyrir hátíðarmatinn fékk Sjöfn Hrefnu Rósu til að kenna áhorfendum að elda góðan sósugrunn sem hentar einstaklega vel með villibráð og ýmsum steikum auk þess sem  Hrefna Rósa eldaði rjúpu og hreindýr og gómsætt meðlæti sem enginn verður svikinn af.  Allt bragðaðist þetta ómótstæðilega vel og ótrúlega ljúft og einfalt að elda þessa sælkerarétti sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Sjöfn fékk Hrefnu Rósu til að gefa okkur uppskriftirnar að þessum sælkeraréttum sem vert er að prófa og njóta um hátíðarnar.

Þegar Sjöfn mætti til Hrefnu Rósu var allt komið á fullt í eldhúsinu og Hrefna Rósa komin í hátíðarskap.  „Það er svo gaman að elda rjúpubringur og hreindýravöðva og leika sér með meðlætið og það besta er að eldamennskan þarf ekki að vera flókin,“ segir Hrefna Rósa með bros á vör. 

 

Rósmarín einiberjasósa

2 msk. olía

3 stk. shallottulaukur

4 rif hvítlakur

10 einiber

1 stk. stjörnuanis

2 greinar rósmarín

3 msk. sýróp

3 msk. balsamik edik

800 ml nautasoð í fernu

80 g smjör

 

Aðferð: Skerið laukana gróft niður. Hitið pott með olíu í og steikið laukinn við miðlungs hita þar til hann verður glær. Bætið einiberjum, stjörnuanis og rósmarin út í og steikið aðeins áfram. Bætið loks sýrópi og ediki út í og leyfið því að karamellast aðeins og sjóða saman þar til það þykkist. Bætið nautasoðinu út í og sjóðið niður um helming eða þar til hún er orðin þykk. Sigtið sósuna og pískið smjörinu saman við hana.

*Hægt að bæta rjóma eða sultu út í til að breyta sósunni algjörlega. 

 

Balsamik chili rósakál

1 poki rósakál

2 msk. smjör

4 msk. balsamik edik

1-2 tsk. chili flögur eða eftir smekk

Aðferð: Snyrtið rósakálið, sjóðið það í söltu vatni í 5 mínútur og setjið það svo í kalt vatn og skerið það í tvennt. Hitið pönnu með olíu og steikið rósakálið á pönnu. Bætið smjöri út á pönnuna og leyfið því að freyða aðeins. Bætið svo balsamik edikinu út á og leyfið því að karamellast. Kryddið svo til með chili kryddinu eftir smekk.

\"\"

 

Létt steiktar rjúpubringur og hreindýrasteik

fyrir 4

4 stk. rjúpubringur

300 g hreindýrakjöt

salt og pipar

olía til steikingar

smjörklípa

rósmarín

Aðferð: Kryddið kjötið með salti og pipar. Steikið hreindýrið í 2 mínútur á hvorri hlið og létt steikið rjúpuna. Setjið saman í eldfast mót og eldið hreindýrið við 180°C í 5 mínútur en rjúpuna aðeins í 2 mínútur.

\"\"

 

Hreindýrasneiðar með klettasalati, hindberjum og parmesan osti

forréttur fyrir 4

200 g hreindýr

olía til steikingar

Salt

olífuolía

150 g parmesan ostur

12 stk. hindber

½ poki klettasalat

Aðferð: Steikið hreindýrakjötið á vel heitri pönnu í 2 mín á hvorri hlið. Skerið kjötið í ágætar sneiðar og raðið á disk. Kryddið yfir með salti. Hellið olifuolíu yfir. Rífið parmesan ost yfir. Setið loks hindber og klettasalat ofan á. Einfalt og gott. 

 

2019 útgáfan af sykurbrúnuðum kartöflum

fyrir 4

20 stk litlar kartöflur

150 g heslihnetur

200 g sykur

vatn

Aðferð: Setið vatn í pott ásam sykrinum og fáið upp suðu. Sjóðið kartöflurnar og hneturnar í 25 mínútur í sykurvatninu. Sigtið svo kartöflurnar og hneturnar og leyfið öllu vatni að leka vel af þeim. Hitið ofninn upp í 200°C og bakið kartöflurnar og hneturnar í eldföstu móti í svona 15 mínútur. Njótið vel og gleðilega jólahátíð.