Fulltrúar sýslumanns sátu um veiðhúsið í Haffjarðará í gærmorgun til að freista þess að birta Björgólfi Thor Björgólfssyni stefnu sem fyrrum eigendur Landsbanka Íslands vilja birta honum.
Frá þessu er skýrt á Fréttavef DV: \"Það er mjög óvanalegt að menn vilji ekki taka við stefnum, eiginlega sérstakt,“ segir Jóhann Bjarni Björnsson lögmaður í samtali við DV, en hann leiðir hóp manna sem hyggjast höfða hópmálssókn á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni fjárfesti, en ekki hefur tekist að birta honum stefnu þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í eina viku.
Stefnuvottar fóru meðal annars upp í Mosfellsdal í leit að Björgólfi Thor.
Forsaga málsins er sú að fyrrum hluthafar Landsbanka Íslands hf. hefur unnið að undirbúningi hópmálsóknar, ásamt lögmannsstofunni Landslögum, á hendur fjárfestinum Björgólfi Thor Björgólfssyni.
Samkvæmt fréttatilkynningu hópsins í júní síðatliðnum hefur rannsókn og gagnaöflun leitt til þess að fram séu komin gögn sem gefi sterklega til kynna að Björgólfur Thor hafi með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar fengju upplýsingar um umfangsmiklar lánveitingar tengdar honum og einnig að hann hafi brotið gegn reglum um yfirtökuskyldu.
Á meðal þeirra sem taka þátt í málsókninni eru þingmaðurinn Vilhjálmur Bjarnason, Samtök sparifjáreigenda og lífeyrissjóðurinn Stapi.
Jóhann Bjarni staðfestir í samtali við DV að erfiðlega hafi gengið að afhenda viðskiptamanninum stefnuna. Að hans sögn er algengast að afhenda lögmanni viðkomandi stefnuna, sem í þessu tilfelli væri Reimar Pétursson. Jóhann Bjarni segir að það hafi verið reynt. „En hann vildi ekki veita henni móttöku,“ segir Jóhann.
Samkvæmt heimildum DV fékk stefnuvottur þá fregn að Björgólfur væri á landinu og væri að veiða ásamt föður sínum í Haffjarðará. Fór hann því þangað í morgun og ræddi við starfsfólk sem vísaði honum að bústað þar nærri. Þegar þangað var komið mun faðir Björgólfs Thor hafa komið til dyranna og svarið að sonur sinn væri ekki á vettvangi. Breytti þá engu um að bifreið Björgólfs Thor var einnig við veiðihúsið sem og bílstjóri hans.