Ríkisoddvitar Evrópusambandsins (ESB) hittast nú eftir hádegið í Brussel. Þeir munu ræða um myntbandlagið og um aðkomufólk. Svo er ráðgert að gera framvindumat á Brexit viðræðum Breta og ESB og því næst að ræða stöðu þessara viðræðna og framhaldið.
Breskir stjórnmálaskýrendur eru á báðum áttum um bæði stöðu Theresa May sem oddvita Íhaldsflokksins og sem forsætisráðherra. Líkast til skýrast þau mál um helgina þegar Theresa May snýr aftur heim og segir frá því hvernig hún metur stöðuna.
Þó stöku þingmenn Íhaldsflokksins hafi ekki hlýtt þinglóðsum flokksins í atkvæðagreiðslu fyrr í vikuni merkir það ekki að Theresa May sé að víkja sem leiðtogi flokksins og forsætisráðherra. Mýmörg dæmi eru þó um það hvernig breskir forsætisráðherrar hafa misst öll völd á örskömmum tíma.
Theresa May er ekki gömul í hettunni. Aðgerðir hennar í Brexit hafa hvorki sýnt styrk eða hæfni hennar né hafa þær verið til þess fallnar að hrífa Breta og vinna fylgi þeirra við Theresa May.
Sú tíð er líkast til liðin að breskir íhaldsmenn voru reiðubúnir að gera allt hinum nýja forsætisráðherra til varnar.
Theresa May hefur sjálf opinberað annmarka sína.
Veilurnar í skipulagi Brexit viðræðnanna af hennar hálfu hafa bakað henni óvild innan Íhaldsflokksins.
Ef ekki kæmu til þessar veilur ætti Íhaldsflokkurinn að hafa mátt til að halda Brexit viðræðunum úti.