Stefnumót g20 2017

Dagskrá tólfta stefnumóts G20 hópsins snýst að sögn stjórnmálaskýrenda fyrst og fremst um Parísar samkomulagið um loftslagsmál. Það er allavega vilji Angelu Merkel kanslara Þýsklands og gestgjafa.

Donald J. Trump froseti Bandaríkjanna hefur sagt Bandaríkin frá samkomulaginu og efnir hann þar með kosningaloforð sitt. Þetta telur kanslari Þýsklands ekki ásættanlegt.

Því er þess vegna spáð að á þessu stefnumóti munu þau takast hart á um loftslagsmál Angela Merkel kanslari og Donald J. Trump forseti. Forseti Bandaríkjanna þarf þó aðeins að árétta stefnu sína og hlusta en engu lofa. G20 stefnumótið er ekki annað en enn eitt stefnumót ríkisoddvita af fjölmörgum slíkum stefnumótum.

Hvað ríkisoddvitarnir tuttugu kunna að ræða í hliðarherbergjum skal óasagt látið. Líklega munu forsetar Bandaríkjanna og Kína hittast til að ræða um framvindu mála á Kóreuskaganum og einhverjir ríkisoddvitar Evrópusambandsins munu hittast tveir eða fleiri og ræða um Brexit og um flaum aðkomufólks til Evrópu.

Hvort Donald J. Trump og Vladimir Putin forseti Rússland hittast einslega til að ræða um Úkraínu og um Sýrland fæst ekki staðfest. Stjórnmálaskýrendur eiga ekki von á stórtíðundum frá Hamborg. En spyrjum að leikslokum. 

Ríkisoddvitar á fundinum í Hamborg geta átt von á því að forseti Bandaríkjanna segir þeim að G20 fundirnir þjóní ekki lengur nokkrum tilgangi og að hann muni ekki koma á fundinn á næsta ári sem áformað er að verðí í Argentínu. 

rtá