Stefnt að undirritun samninga í dag

Allt útlit er fyrir að samningar takist í dag í kjaraviðræðum stéttarafélaga iðnðarmanna og Samtaka atvinnulífsins í dag, en mjög góður skriður hefur verið á viðræðum þessara aðila um helgina.

Verkföll félaganna hefjast að öðrum kosti í kvöld, en nú nokkup augljóst að af þeim verði ekki, enda viðræður á lokastigi: \"Nú er málið í hönd­um samninganefnda einstakra ein­stakra fé­laga,\" sagði Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA í í gærkvöld og sagði vinnunni við samningaborðið hafi miðað ágætlega, en síðan verði auðvitað bara að koma í ljós hvernig það fari, eins og hann orðaði það. En það sé gert ráð fyr­ir því að ljúka samningum í dag, segir hann óhikað.

Hilm­ar Harðarson formaður Samiðnar seg­ir hlut­ina líta ágæt­lega út: „Þetta skríður allt í rétta átt, það er nokkuð ljóst. Við eig­um eft­ir að fara með þetta í baklandið núna en það hef­ur gerst svo­lítið á síðasta sól­ar­hring,“ var haft eftir honum í gærkvöld.