Fulltrúar samninganefnda VR, LÍV, Flóans og StéttVest stefna að því að undirrita nýjan kjarasamning við Samtök atvinnulífsins á hádegi í dag, en hann er talinn verða leiðarstef í samningum annarra stétta sem eru með lausa samninga.
Hnúturinn í viðræðum þessara deilenda leystist nokkuð hratt um Hvítasunnuhelgina þegar krafa atvinnurekenda á breyttan dagvinnutíma var lögð til hliðar og afráðið var að ræða þá breytingu utan bráðra kjarasamninga. Þar með var fyrirhuguðum verkföllum frestað og gengið til samningagerðar af fullum þunga sem nú hefur skilað sér í 300 þúsund króna lágmarkslaunamarkinu sem næst á þremur árum og hagsmunavörslu um meðaltekjuhópinn sem ætlað er að njóti inngrips stjórnvalda hvað skattkerfisbreytingar varði.
Síðasti vinnudagur Magnúsar Péturssonar ríkissáttasemjara í Karphúsinu eftir sjö ára starf ætlar þv´æi að verða sögulegur með viðeigandi vöffluilmi fyrir vitum, en arftaki hans Bryndís Hlöðversdóttir tekur við kefli hans eftir helgi og hefur ærinn starfa.
Með þessum samningum er komið í veg fyrir verkföll tugþúsunda landsmanna sem hefðu lamað íslenskt atvinnulíf á bjargræðistíma, en fullvíst er talið að Starfsgreinasambandið og stéttarfélög iðngreinanna semji á þeim nótum sem hér hafa verið slegnar.
Þá er opinberi geirinn einn eftir í verkfallsaðgerðum, sem hafa í tilviki Bandalags háskólamanna staðið yfir í nærfellt tvo mánuði. Hætt er við að þær deilur haldi áfram, enda telja félagsmenn BHM og Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga sig vera að semja um kjör í samræmi við menntun og allsendis óháð samningum á almennum vinnumarkaði.