Samninganefndir Eflingar, VR, VLFA, VLFG, LÍV og Framsýnar og samninganefnd Samtaka atvinnulífsins funda nú hjá ríkissáttasemjara. Gærdagurinn var nýttur til þess að vinna að orðalagi kjarasamninga og hnýta lausa enda. Formaður VR segir að stefnt sé að því að undirrita kjarasamninga í dag. Fréttablaðið greinir frá.
„Við erum að fara í þessi praktísku atriði varðandi yfirlestur samningsins og það tekur bara tíma. Við erum að klára þá vinnu fyrir hádegi og við stefnum á undirritun kjarasamninga um þrjú leytið í dag. Félögin eru eitthvað mislangt á veg komin en heilt yfir held ég að þetta ætti að takast,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í samtali við Fréttablaðið.
Hann segir ekkert hafa breyst frá því í gær. „Við stefnum að því að skrifa undir í dag, en það er ekkert svo stórt sem stendur út af borðinu sem gefur tilefni til að ætla eitthvað annað. Heilt yfir sýnist mér þetta vera að klárast.“