Karl Ágúst Úlafsson hefur ákveðið lagaval Alþingis í ljósi tillögu Bjartrar framtíðar um að hefja þingfundi á samsöng; menn muni hér eftir lýsa ágreiningi sínum með því að taka lag eins og ÞÚ VILT GANGA ÞINN VEG, ÉG VIL GANGA MINN VEG.
Svona byrjaði hann sjónvarpsþátt sinn Helgina í gærkvöld, en honum finnst hugmyndin brilljant: \"Þingheimur þyrfti þá ekki að sitja undir hrútleiðinlegu málþófi og þegar búið væri að setja upp karíókíkerfi í þingsalnum myndu menn tjá sig um kvótakerfið með laginu FISKINN MINN, NAMMI NAMMI NAMM og LOK LOK OG LÆS OG ALLT Í STÁLI þegar rætt er um fangelsismál.\"
Pólitíkin var auðvitað nærri: \"Sigmundur Davíð hefur engin tengsl við DV og DV ber ekki hag Sigmundar Davíðs sérstaklega fyrir brjósti. Þetta kemur skýrt fram í forsíðuviðtali Við Sigmund Davíð í DV. Og til að taka af allan vafa var blaðið borið inn á hvert einasta heimili á landinu. Vel gert.\"
Og hann hélt út fyrir landsteina: \"Grikkjum gengur vel að tileinka sér „íslensku leiðina‘‘ við að endurreisa efnahagslíf sitt. Þeir eru þegar farnir að senda óskiljanleg bréf til Evrópusambandsins og hafa sótt um aðild að skagfirska efnahagssvæðinu.\"
Og aftur heim: \"Fyrirtækið Sinnum, sem rekur einkarekið sjúkrahótel í Reykjavík hefur látið starfsfólk sitt skrifa undir nýja útgáfu af Hippókratesareiðnum. Þetta er lítils háttar orðalagsbreyting, þar sem í staðinn fyrir að heita því græða mein sjúklinga sinna strengir fyrirtækið þess eið leggja allt í sölurnar til að græða á sjúklingum sínum.\"
Karl Ágúst er oft hugsi, en alltaf lausnamiðaður: \"Fólk sem dæmt er til fangavistar á Íslandi þarf oft að bíða í rúmt ár eftir að fá að hefja afplánun. Er ekki alveg rakið að leyfa því að taka út refsingu með því að leggjast inn á sjúkrhótel Sinnum.\"
Og svo þetta: \"Konur á Íslandi styðja ekki ríkisstjórnina samkvæmt nýlegri könnun, en það gerir ekkert til, vegna þess að ríkisstjórnin styður ekki heldur konur.Og talandi um konur, samningar tókust á milli ríkisins og hjúkrunarfræðinga. Hjúkrunarfræðingar eru hundóánægðir með samningana og stórir hópar þeirra eru á leiðinni úr landi. Grikkir eru þegar farnir að biðja íslesnska ríkið um nánari leiðbeiningar um hvernig eigi að rústa svona heilbrigðiskerfi.\"
Enn er hann hugsi: \"Íslenska lögreglan vill endilega fá rafbyssur til að beita á Íslendinga. Raforka er ódýr á Íslandi og það er eiginlega mjög undarlegt í hve litlum mæli hún hefur verið nýtt til ofbeldisverka hér á landi fram að þessu. En þetta horfir allt til betri vegar og í lok þessa áratugar er stefnt að því að 80% lögregluofbeldis á Íslandi verði rafknúið.\"
Að lokum: \"Og heyrst hefur að til standi að breyta nafni Garðabæjar í Gamlabæ, en eins og fram kom í fjölmiðlum í vikunni hefur bæjarstjórn Garðabæjar þungar áhyggjur af „fjölgun aldraðra‘‘ í bæjarfélaginu. Já, einhvern veginn verður að koma í veg fyrir að aldraðir fjölgi sér svona stjórnlaust. Og þá gætu nú rafbyssur komið í góðar þarfir.\"