Stefnir ríkinu: vill fá líf sitt til baka

Lifrarbólgusmituð kona, sem fær ekki byltingarkennd lyf, segist vilja öðlast líf, eftir 32 ára veikindi. Ríkislögmaður segir engu skipta fyrir rétt hennar að hún smitaðist á íslensku sjúkrahúsi.
 
Þetta kemur fram á fréttavef RÚV þar sem segir að Fanney Björk Ásbjörnsdóttir, sem býr í Vestmannaeyjum, hafi smitast af lifrarbólgu C við blóðgjöf á sjúkrahúsinu þar eftir barnsburð árið 1983. Hún hefur verið heilsuveil æ síðan, en sjúkdómurinn var ekki greindur fyrr en hátt í 30 árum eftir blóðgjöfina.
 

Nú stendur hún í málaferlum við ríkið, því hún fær ekki nýtilkomin lyf sem rannsóknir benda til að geti læknað langt yfir 90% sjúklinga á tólf vikum. Meðferðin kostar hátt í tíu milljónir króna.