Annar þáttur Ritstjóranna fer í loftið á Hringbraut í kvöld, en að þessu sinni mæta í þáttinn Atli Fannar Bjarkason ritstjóri Nútímans, Jónas Haraldsson ritstjóri Fréttatímans og Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Vikunnar. Þættinum er ætlað að vera mælitæki á andrúm samfélagsins og frammistöðu þeirra sem helst og oftast eru í fréttum.
Kjaradeilurnar verða ofarlega á baugi í umræðunni að þessu sinni, en Jónas Haraldsson sem verið hefur í blaðamennsku frá því á miðjum áttunda áratugnum metur það svo allt stefni á versta veg á vinnumarkaði frá því árið 1977 þegar svokallaðir sólstöðusamningar voru gerðir og hleyptu óðaverðbólgu af stað sem tók íslenskt efnahagslíf hálfan annan áratug að jafna sig á.
Þriðjungur landsmanna stefnir nú í verkfall og ef af verður, má ljóst vera að samfélagið lamast.
Þá verður rætt um stöðu stjórnmálaflokkanna á Alþingi Íslendinga en hún er æði misjöfn; spurt er hvað valdi mikilli fylgisaukningu Pírata og hvað orsaki miklar óvinsældir ríkisstjórnarinnar sem nýtur nú minni stuðnings en vinstristjórnin á síðasta kjörtímabili.
Þátturinn er frumsýndur klukkan 21.30 í kvöld og er í umsjón Sigmundar Ernis Rúnarssonar ritstjóra og dagskrárstjóra Hringbrautar.