Stefnir í verkfall iðnaðarmanna

Líkur fara nú ört vaxandi á því að iðnaðarmenn hér á landi fari í verkfall, en einungis fimm dagar þar til iðnaðarmenn leggja niður vinnu en samningafundir þeirra við viðsemjendur eru ennþá í hnút.


"Núna erum við bara að und­ir­búa okk­ur und­ir verk­falls­átök­in sem eiga að hefjast í næstu viku,“ seg­ir Borgþór Hjörv­ars­son, vara­formaður Rafiðnaðarsam­band Íslands við Morgunblaðið í morgun, en verk­fallsaðgerðir sam­bands­ins og fimm annarra stétt­ar­fé­laga iðnaðarmanna hefjast að öllu óbreyttu 10. júní næst­kom­andi.


Borgþór seg­ir að verk­fallið sem á að hefjast á miðviku­dag­inn standi enn til og að því hafi ekki verið frestað. Hann seg­ir jafn­framt að samn­inga­nefnd Sam­taka at­vinnu­lífs­ins hafi boðið iðnaðarmönn­um sömu samn­inga sem samn­inga­nefnd­ir VR, Flóa­banda­lags­ins, LÍV og Stétt­Vest, und­ir­rituðu í síðustu viku. „Þeir vilja bara láta okk­ur fá sömu samn­ing­ana en við telj­um að það sé ekki nóg, enda störf­in ekki sam­bæri­leg,“ seg­ir Borgþór.



Ljóst er að verk­fall iðnaðarmanna get­ur haft mik­il áhrif hér á landi. Borgþór seg­ir við blaðið að verk­fall raf­virkja geti haft mik­il áhrif, m.a. við flug en meðal þeirra sem myndu leggja niður störf eru raf­virkj­ar og raf­einda­virkj­ar á Kefla­vík­ur­flug­velli og Reykja­vík­ur­flug­velli. Þeir sjá m.a. um viðhald á ljósa­búnaði á flug­völl­um og flug­leiðsögu­búnaði. „Við nátt­úru­lega sinn­um öll­um neyðar­til­vik­um, eins og til dæm­is með sjúkra­flugið og þess­hátt­ar. Þá mun verk­falls­stjórn­in veita und­anþágu. En við mun­um ekki sinna öðrum verk­um nema það sé eitt­hvað mjög sér­stakt.“