Stefnir í sömu einkaneyslu 2020 og 2007

Einkaneyslan er að aukast aftur en á talsvert land svo hún sé á pari við það sem þekktist herrans árið 2007. Ef ekki verða stóráföll gæti einkaneyslan hér á landi verið orðin svipuð og árið 2997 um 2020.

Þetta skrifar benedikt Jóhannesson, ritstjóri Vísbendingar í nýjasta hefti ritsins sem fjallar um viðskipti og efnahagsmál. Benedikt er talnaglöggur maður, enda stærðfæðingur og hefur rýnt í þjóðarhag um áratugarskeið: \"Frá 1997 til 2007 var hækkun kaupmáttar ráðstöfunartekna um 50% eða um 4% á ári,\" bendir hann á og heldur áfram: \"Almennt er talið að kaup­máttur launa geti batnað um 1,0 til 1,5% á ári, en taka verður með í reikninginn að fjár­magnstekjur jukust á tímabilinu. Sé horft á tímabilið í heild sést að hækkunin er 1,3% á ári sem er á réttu róli miðað við kenningar um framleiðniaukningu.“

Hann segir að mjög hafi dergið úr einkaneyslu eftir hrun, sem von var, enda jókst atvinnuleysi, yfirvinna minnkaði, laun voru lækkuð, verðbólga rauk upp og krónan rýrnaði mjög í verðgildi sínu. Fyrir vikið dró úr utanferðum og innflutningi, t.d. hafi bílasala verið sáralítil um árabil. Nú sé sá markaður að taka við sér svo um munar og sömu merkja sjái stað víðar í viðskiptalífinu.

\"Nú stefnir í að kaupmátturinn aukist meira næstu tvö til þrjú ár en þessu nemur. Seðlabankinn boðar í Peningamálum vaxtahækkanir til þess að sporna við verðbólgu. Vegna þess að samningar voru gerðir til langs tíma eru vonir um að verðbólga geti minnkað aftur á árunum 2018-19. Ef ekki verða stóráföll gæti einkaneyslan hér á landi verið orðin svipuð og árið 2007 um 2020,\" skrifar Benedikt í Vísbendingu.