Stefnir í skyrstríð við risann arla

Sænska stór­fyr­ir­tækið Arla hef­ur markaðssett eig­in fram­leiðslu á skyri víða í Evr­ópu síðustu mánuði.Íslenskur framleiðendur ætla að krefjast þess að þeir fái ekki að nota nafni skyr á framaleiðslu sína.  

Fyr­ir­tækið hef­ur kostað miklu til í markaðssetn­ingu, t.d. í Bretlandi og Þýskalandi, og höfðað til ís­lensks upp­runa skyrs­ins með marg­vís­legu mynd­efni frá Íslandi, að því er fram kem­ur í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.

Í Nor­egi og Finn­landi er skyr skrá­sett sem vörumerki í eigu Mjólk­ur­sam­söl­unn­ar og sam­starfsaðila. Lög­banns­beiðni verður lögð fram í Hels­inki á mánu­dag þess efn­is að Arla fái ekki að nota heitið skyr á fram­leiðslu sína þar í landi. Skyr­inu hef­ur verið einstaklega vel tekið í Fimnlandi.

Fram kemur í Morgunblaðinu í dag að áætlað er að hefja sölu á skyri framleiddu á Íslandi á Írlandi í september og um miðjan október í Bretlandi. Innflutningskvóti MS á á skyri til landa ESB er upp á 390 tonn og verður hann nýttur í þessu skyni, en var áður nýttur í Finnlandi. Þar er ársneyslan nú yfir fimm þúsund tonn og er skyrið framleitt í Danmörku samkvæmt samningi Mjólkusamsölunnar og dansks mjólkurbús.