Stefnir í óefni

Guðbjörg Pálsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir mikið vanta á að nógu margir útskrifist úr hjúkrun til að fylla í þau störf sem verða til vegna þess að aðrir hjúkrunarfræðingar láta af ströfum, ekki síst sökum aldurs. Þá vanti mikið til að fylla þau störf sem verða til vegna fólksfjölgunar og breytinga í starfi.

Sem dæmi nefndi Guðbjörg að fjórfalt fleiri sóttu um nám í hjúkrun í fyrsta bekk í Háskólanum á Akureyri en komust að. Áhuginn er til staðar en námsframboðið vantar. Breytingar á þessu þola enga bið, að mati Guðbjargar.

Aðeins tvö prósent hjúkrunarfræðinga eru karlar og unnið er að breyta því. Ísland sker sig úr öðrum þjóðum fyrir hversu hlutfall karla er lágt hér á landi.

Vaktavinna er frekar fráhrindandi og minni vilji er nú en áður til að vinna þá vinnu. Hjúkrunarfræðingar eru eftirsóttir í önnur störf, ekki síst sem flugfreyjur.

Viðtal við Guðbjörgu er á dagskrá Þjóðbrautar klukkan 21:00.