Stefnir í mjög spennandi kosningar

Morgunblaðið og 365 hafa birt nýjar skoðanakannanir, kannanir sem eru helst ólíkar þegar fylgi við Sjálfstæðisflokk og Pírata er skoðað. 365 gefur Sjálfstæðisflokki tæplega fimm prósentustigum meira fylgi en flokkurinn fær í könnuninni sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir Morgunblaðið. Pírata fá að sama skapi um þremur prósenstustigum minna hjá 365 en hjá Morgunblaðinu.

Hér að neðan er tafla með stöðunni einsog hún er nú, það er allar nýjustu kannanir þeirra sem mæla fylgi. Rétt er að árétta að Félagsvísindastofnun mælir fylgið fyrir Morgunblaðið.

      
 365GallupMBLMMRMeðaltal
A-listi Björt framtíð6,37,76,78,87,4
B-listi Framsóknarflokkur9,99,810,21010
C-listi Viðreisn10,512,411,49,310,9
D-listi Sjálfstæðisflokkur27,322,622,521,923,6
P-listi Píratar18,418,321,219,119,3
S-listi Samfylking5,77,15,77,66,5
V-listi Vinstri græn16,414,516,81615,9

 

Hér að neðan sést hvernig fylgið og væntanlegir þingmenn skiptast milli fylkinga.

     
Blokk eitt% Blokk tvö%
Björt framtíð7,4 Framsókn10
Pítatar19,3 Viðreisn10,9
Samfylking6,5 Sjálfstæðisflokkur23,6
Vinstri græn15,9 Samtals44,5
Samtals49,1   
     
     
Blokk eittÞingm.Blokk tvöÞingm.
Björt framtíð5 Framsókn7
Pítatar13 Viðreisn7
Samfylking4 Sjálfstæðisflokkur16
Vinstri græn11 Samtals30
Samtals33