Már Guðmundsson, seðlabankastjóri segir það mat bankans að gjaldeyrisforði íslenska ríkisins aukist um 40 milljarða og skuldastaða ríkisins lækki úr 33% af landsframleiðslu niður í 10%. Það jafngilti lægstu skuldastöðu Íslands frá því seint á sjöunda áratug síðustu aldar.
Þetta kom fram á blaðamannafundi í Hannesarholti á fjórða tímanum í dag þar sem farið var yfir losun gjaldeyrishafta í ljósi stöðugleikaframlaganna sem eiga að liðka til í þeim efnum.
Már sagði á fundinum að 500 milljarðar renni beint eða óbeint í ríkissjóð í gegnum stöðugleikaframlögin eða skatt af sama toga, en þar með væri greiðslujafnaðarvandinn að baki sem leiddi til þess að hægt yrði að aflétta gjaldeyrishöftunum fljótlega.
Seðlabankastjóri sagði að ef allt væri tekið saman í þessum efnum næmu mótvægisaðgerðirnar um 850 milljörðum króna.