Árleg arðgreiðsla Landsvirkjunar undir lok þessa áratugar gæti vel orðið allt að 20 milljarðar króna að því er stjórnendur fyrirtækisins fullyrða, en það hefur greitt niður skuldir sem nemur ríflega 80 milljörðum á síðustu fimm árum á sama tíma og fjárfesting þess hefur numið nærri 70 milljörðum króna.
Þessar tölur eru á meðal þeirra sem munu koma fram á ársfundi Landsvirkjunar í dag, en hann fer fram í Hörpu. Þar mun verða farið ítarlega yfir það jafnvægi sem komið er í rekstur fyrirtækisins á síðustu árum sem mun vissulega þýða mkikla búbót fyrir eina eiganda þess, ríkissjóð. Arðgreiðslur Landsvirkjunar á síðustu árum hafa yfirleitt numið 1,5 milljarði króna.
Þessar áætlanir Landsvirkjunar miðast við að ekki verði ráðist í viðamiklar virkjanir á næstu árum, ellegar að leggja sæstreng til Evrópu, en við það myndi skapast sviugrúm til að draga úr niðurgreiðslum skulda og auka fyrir vikið arðgreiðslur fyrirtækisins að miklum mun.