Kosningasjónvarp stjórnmálaflokkanna er á dagskrá klukkan 22.00 á Hringbraut og í kvöld er þáttur Viðreisnar. Þar eru viðmælendur Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, oddviti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi og Ólafur Egill Egilsson, leikari og leikstjóri. Meðal þess sem þau ræða eru framlög til menningar og hversu mikilvæg menningin er í hverju samfélagi. Þá segir Þorgerður Katrín frá því í hverju stefna Viðreisnar felst í menningarmálum. Umsjónarmenn þáttarins eru Birna Hafstein og Bjarni Halldór Janusson. Þátturinn verður endursýndur á föstudag og um helgina. Hér má sjá sýnishorn úr þætti kvöldsins.
Stefna viðreisnar í menningarmálum
Fleiri fréttir
Nýjast