Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG formaður atvinnuveganefndar Alþingis, segir á Þjóðbraut í gærkvöld að efni frumvarpsins um lækkun veiðigjalda sem atvinnuveganefnd lagði fram fyrir um tveimur vikum sé í samræmi við stefnu VG sem er að styðja við litlar og meðalstórar útgerðir. Búið er að draga frumvarpið til baka og verður ekki afgreitt fyrir áramót.Óbreytt veiðigjöld haldast því þangað til. Aðspurð hvort að formaður VG og forsætisráðherra hafi rekið hana aftur með málið segir Lilja Rafney: „Hún rak mig ekkert aftur með þetta“, og meinar að Katrín Jakobsdóttir hafi ekki beitt sér gegn málinu en nokkuð ljóst er að þingflokkur VG og baklandið hefur verið í uppnámi vegna málsins.
Oddný G. Harðardóttir þingflokksformaður Samfylkingarinnar mætti með Lilju í þáttinn til Lindu Blöndal og benti á að augljóst hefði verið frá byrjun að málið myndi ekki ná fram að ganga og veiðigjaldalækkunin fari að stórum hluta til stærstu útgerða landsins.
Lilja Rafney benti á að samþjöppun í sjávarútvegi væri slík að nauðsyn væri að styðja við minni útgerðir og það sem fyrst en Oddný benti á að lækkun veiðigjalda kæmi samþjöppun veiðiheimilda ekki neitt við.
Lilja og Oddný deildu um fjármálaáætlunina sem nú verður rædd og afgreidd fyrir sumarfrí, sennilega í næstu viku. Lilja sagði mikil útgjöld þar að finna til heilbrigðismála en Oddný taldi ekkert bætt úr í velferðarmálum.
Þjóðbraut er endursýnt í dag og einnig aðgengileg á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.