Stefna samfylkingarinnar „splundraðist“

Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur sem mun leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi og Páll Magnússon, þingmaður og oddiviti Suðurkjördæmis Sjálfstæðismanna mæta í Þjóðbraut til Lindu Blöndal í kvöld Kl.21.

„Fylgi Samfylkingarinnar og stefna Samfylkingarinnar splundraðist í frumeindir eiginlega. Ef þú spyrðir Hver er stefna Samfylkingarinnar? þá væri svarið að hún væri hjá Pírötum, hún er hjá Bjartri framtíð, hún er hjá Viðreisn\", segir Guðmundur Andri um stöðugt minni stuðning við Samfylkinguna undanfarin misseri. „Samfylkingin var skilin eftir eins og rekald\".

Flokkurinn virðist núna eitthvað rétta úr kútnum, mælist með allt að rúmum 10 prósentum í fylgi en fékk 5,7 prósent í síðustu kosningum og þrjá þingmenn. Mest hefur flokkurinn náð 30 prósenta fylgi en það var í kosningum eftir hrunið, þegar Jóhanna Sigurðardóttir fór í stjórn með VG. Eftir það lá leiðin niður á við.

Páll Magnússon segir á Þjóðbraut um stjórnarslitin: „Ef þetta hefði ekki verið Björt framtíð heldur Samfylkingin þá hefðu þeir borið sig öðruvísi að\". Pólitískur stöðugleiki næðist fyrst og fremst með Sjálfstæðisflokki og VG þótt augljóst sé að verði úrslit miðað við nýjustu kannarnir muni formaður VG mynda stjórn með Samfylkingunni og Pírötum. Rótið í pólitíkinni sé helsta ógnin við gott efnahagsástand sem nú ríki.