Skrifað var í gær undir viljayfirlýsingu um byggingu 33 íbúða við Asparskóga á Akranesi í gær.
Þeir sem rituðu undir viljayfirlýsinguna voru Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri, Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs íbúðafélags, Gylfi Arnbjörnsson stjórnarformaður Bjargs og forseti ASÍ og Árni Stefán Jónsson, varaformaður stjórnar Bjargs og formaður SFR.
Með viljayfirlýsingunni veitir Akraneskaupstaður Bjargi íbúðafélagi vilyrði um úthlutun á lóðum að Asparskógum 12, 14 og 16.
„Með undirritun yfirlýsingarinnar er stórt skref stigið í að mæta íbúum Akraness með fjölgun leiguíbúða en lítið framboð hefur verið af slíkum síðastliðin ár. Ég er fullur tilhlökkunar yfir verkefninu og hef mikla trú á því. Við erum hér að mæta fjölskyldum hér í bæ með nýjum leiguíbúðum á leiguverði sem tekur mið af tekjum heimilisins”, segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi.
Björn Traustason framkvæmdastjóri Bjargs lýsti yfir ánægju sinni með undirritunina og er spenntur fyrir að hefja þetta metnaðarfulla verkefni á Akranesi. Björn lýsir yfir mikilli ánægju með samstarfið við fulltrúa Akraness og hversu hratt og örugglega ferlið hefur gengið fyrir sig.
Rakel Óskarsdóttir, bæjarfulltrúi og varaformaður skipulags- og umhverfisráðs fagnaði þessum áfanga enda væri leigumarkaðurinn á Akranesi erfiður sem stendur. Þarna skapaðist tryggt leiguhúsnæði fyrir einstaklinga, ungar fjölskyldur, námsmenn o.fl. og spennandi yrði að fylgjast með uppbyggingunni.