Stefáns karls minnst með klukknahljómi

Stefáns Karls Stefánssonar leikara var minnst á dögunum í ríkisháskólanum í Iowa í Bandaríkjunum.

Í frétt Rúv segir:

Klukkur í fornum turni við skólann léku lag úr sjónvarpsþáttunum um Latabæ til að heiðra minningu Stefáns Karls sem öðlaðist heimsfrægð í hlutverki sínu sem Glanni glæpur.

Stefán Karl ferðaðist einnig um öll Bandaríkin sem Trölli í samnefndum söngleik. Hann veiktist af krabbameini árið 2016 og ræddi alla tíð á opinskáan hátt um baráttu sína við sjúkdóminn. 

Hér má sjá fréttina á ruv.is